Mistin segir frá………

June 1, 2006

Tímamót hjá gimsteinunum mínum

Filed under: Uncategorized — mist72 @ 1:09 am

Síðasti dagurinn á leikskólanum hjá Tinnu Guðrúnu, ekki var að sjá á henni að hún tæki þessum breytingm nærri sér. Enda búið að vera erfitt að fá hana til að fara á leikskólann síðustu mánuði…þrátt fyrir gott starf og fólk á staðnum. Bara algjörlega kominn tími til að breyta.

Síðasti dagurinn í skólanum hjá Bergsteini í dag líka þau enduðu skólaárið á því að tína upp rusl víðsvegar um bæinn og svo var grillað í lokinn. Bergsteinn Logi hafði miklar áhyggjur af því að það kæmi einhver bekkur hingað í okkar götu að tína rusl úr garðinum hjá okkur….. En þá var hann aðalega að hugsa til þess að spýtnadótið sem fylgir kofanum yrði dæmt sem rusl og því hent…. en minn maður er búinn að hafa mikið fyrir því að betla spýtnarusl út um allan bæ til að byggja kofann. Kofinn er tilbúinn en enn er slatti af spýtum og spýtnabútum hér í garðinum og skyldist mér á honum að hann ætlaði að byggja aðra hæð ofan á kofann og svo svona sólpall í kring… Mamman stoppaði þær framkvæmdir því hún veit að ef hún leyfir eina hæð verður komin blokk í garðinn eftir nokkra daga og ef hún leyfir sólpall í kringum kofann þá verður ekki grænn blettur sjáanlegur í kringum húsið okkar… Svo stórtækur er Bergsteinn, trúið mér hér er ekki um ýkjur að ræða. Svo var lokahóf í yngrideildinni í körfu í kvöld og minn strákur kom heim með gullpening um hálsinn sem á stóð "mestu framfarirnar" mamman var hoppandi kát og stolt enda vissi hann varla muninn á körfubolta og CURLING í byrjun vetrar.

Ég og Tinna fórum með bekknum hans Bergsteins í gönguferð um Sauraskóg sem er hér rétt hjá og löbbuðum svo upp á smá hól sem heitir Helgafell, svona í lokin eftir að hafa farið í fjósið á Helgafelli og fengið að knúsa heimaling. Gangan var nokkrir km og alveg ótrúlegt að Tinna skuli hafa tórað. Allt tók þetta 3 tíma og var hin besta hreyfing og skemmtun.

Framundan hjá okkur er fermingin hennar Guðbjargar stóru frænku núna á sunnudaginn, sem verður vafa lítið glæsilegasta veisla og huggulegheit. Svo eru Rita og Stein,i ung og spræk hjón hér í bæ, með kajakmót sem kallast Eiríkur Rauði nú um Hvítasunnuhelgina.Ég ætla að senda Bergstein á kajaknámskeið hjá þeim á Sunn og Mán, þ.e. ef hann kemst að. Tinna Guðrún er enn of ung en Trausti Marel jafnaldri hennar og stórvinur og sonur þeirra R & S er búinn að bjóða henni með sér og pabba sínum í smá "ferð" í sumar, sérhannaða fyrir litla grallara :)

Jæja nú er Garpur Ómar bara orðinn rúmlega 6 mánaða og byrjaður að fá mat, verð nú að segja að hann er frekar matvandur kúturinn. Grautar oij, grænmeti oij, ávextir oij en kjöt karftöflur sósa og svona venjulegaur matur nammi nammmm….Alveg eins og Tinna var. Hún segir enn á hverjum degi við matarborðið, er grænmeti íessu og ég vil ekki salat. Þó svo að hún þurfi ALLTAF að fá sér salat á diskinn þá má reyna. Sumir myndu nú bara gefast upp.. en það er nú ekki hennar stíll.

Ekki meir í bili

Mistin

May 25, 2006

Gott að eiga gáfaða vini…

Filed under: Uncategorized — mist72 @ 9:46 pm

Ég hef sennilega gert ráð fyrir að hugsanalestri þegar ég var að tala um vinnuna mína. Hún Mæja mín var eitthvað að vandræðast með það hvað ég væri nú að fara að gera….. Ég er sem sé að fara að kenna við Fjölbrautarskóla Snæfellinga, mun taka að mér alla almenna kennslu fatlaðra nemenda. Svipað og ég var að gera í VMA. Mjög spennandi verkefni/vinna.

Ekki meira í bili

May 21, 2006

Breytt plön (gerist afar sjaldan hjá mér……)

Filed under: Uncategorized — mist72 @ 11:19 am

Jamm nú er mín bara búin að ráð sig í vinnu næsta vetur, á að vísu eftir að fara og skrifa undir. Hlakka bara til að fara að takast á við eitthvað annað en baranauppeldi og heimilisstörf ONLY. Ætla nú samt að vera í skólanum fyrst ég komst inn en taka því bara með meiri ró.. 5 einingar á önn, held að það sé bara hæfileg skemmtun :)

Annars fór ég suður á föstudaginn og B&T fóru til Ívars þannig að ég var bara ein að væflast með Garpi og við fórum í heimsókn til Hafdísar og gistum þar í góðum félagsskap og svo á laugardag skeltum við okkur í heimsókn til Lindu frænku. Mér finnst alltaf svo gott að koma til hennar og spjalla og núna spjallaði ég meira að segja yfir kaffibolla…!!!! Já margt breytist.

Hvað fannst ykkur nú um Júró… komumst ekki áfram annað árið í röð!!! Get ekki annað en sagt að mér sé svona nokkuð sama og finnst að við eigum að taka okkur svona 2 til 3 ára pásu frá þessari keppni sem verður þá örugglega skemmtilegri þegar komið er til leiks á ný. Og þessar 100 millur já ég sagði 100 sem fóru í þetta má nú nota í ýmislegt annað innan lista og menningarpakkans, hvernig væri að breyta til með það. Heyrist á mörgum að júró sé orðið þreytt, þurfi smá pásu. Annars finnst mér Silvía flottust en fannst hún ekki standa sig neitt sérlega vel á sviðinu, vera svo andstutt og syngja furðulega illa. Já þetta hlutverk hlýtur að hafa reynt á þessa ungu konu. Ekki meir um Júró.

Ekki meira frá mér í bili nema, Guðbjörg Arna frænka varð 14 ára í gær!! Til hamingju skvís

May 17, 2006

já er ég ekki frábær

Filed under: Uncategorized — mist72 @ 4:58 pm

þetta er ég í HNOTSKURN, ef ykkur var ekki farið að gruna það nú þegar þá verðið þið örugglega með það á hreinu hér eftir…… En þetta kerfi virkar mjög vel fyrir alla og mjög gott að nota það þegar maður er í einhverrri niðursveiflu ;)

B- You are always fun when it comes to meeting new people.

Y- One of the hardest gangsters alive

L- You have a nice ass

G- Love is something you deeply believe in.

J- Everybody loves you

A-Damn good in bed

Hann hefur örugglega heitið ARNAR sá sem hefur fundið upp þetta kerfi því nafið hans kemur aðeins of grunsamlega vel út !!!!!!!

 

A-Damn good in bed

R- People think you are so sexy.

N- You are one of the best in bed.

A-Damn good in bed

R- People think you are so sexy.

 

 

 

Skemmtið ykkur við að púsla saman ykkar nafni :)

A-Damn good in bed
B- You are always fun when it comes to meeting new people.
C- Love is something you deeply believe in.
D- You have trouble trusting people.
E- You have a nice ass
F- People totally adore you
G- Love is something you deeply believe in.
H- You have very good personality and looks.
I- Have a big warm heart.
J- Everybody loves you
K- You like to try new things
L- You have a nice ass
M- You never let ppl tell you what to do
N- You are one of the best in bed.
O- You love foreplay
P- You are popular with all types of people.
Q- You are a hypocrite.
R- People think you are so sexy.
S-You have a big heart
T -You are one of the best in bed.
U- You are really layed back.
V- You are not judgemental.
W- You are very broad minded.
X- Success comes easily to you
Y- One of the hardest gangsters alive
Z-knows what they want

May 15, 2006

Kæru aðdáendur

Filed under: Uncategorized — mist72 @ 11:58 pm

Ég vil byrja á því að biðja ykkur afsökunar á því hve langt er um liðið frá síðustu skrifum. Mig tekur það sárt að hafa valdið ykkur vonbrigðum og óþarfa sársauka en til huggunar get ég sagt að það var ekki með vilja gert. þannig er að ég komst ekki inn í "write post" vegna einhverrar aulalegrar villumeldingar. Ég var farin að halda að ég hefði skrifað eitthvað ósæmilegt á síðuna og starfsmenn bloggfyrirtækinsins því lokað á mig tímabundið, ég skoðaði allar gamlar færslur og sá að á nokkrum stöðum glitti í vafasöm orðasambönd en samkvæmt orðabók Háskóla Íslands eru orðasamböndin algeng í ritmáli i dag og því afar ólíklegt að fólki sé vikið út af bloggsíðum vegna þeirra. þannig að ég skil ekki hvað olli því að ég komst ekki inn til að skrifa en ég hallast helst að því að vegna vinsælda síðunnar hafi traffík á hana valdið tímabundnu álagi sem einhverra hluta vegna er komið í jafnvægi í dag, sennilega vegna þess að wordpress fyrirtækið hefur opnað fyrir meiri aðgangsflæði á síðuna þannig að nú ætti allt að vera komið í lag.

Ýmislegt hefur nú gerst hér síðan síðast en aðalega hafa allir notið góða veðursins og fengið nokkrar freknur og brúnar kinnar af útiveru. Tinna er farin að hjóla hjálpardekkjalaus, ég hef nú hugsað um hvort ekki væri skynsamlegt að setja þau á aftur. Hún er svo svakalegur glanni, rennir sér niður brekkur með fæturnar uppi á slánni og skransar svo þegar niður er komið… veit nú samt ekki hvort hjálpardekkin myndu bjarga því :) Bergsteinn er búinn að byggja kofa hér í garðinum, ekkert smá flottann hann hefur fengið aðstoð frá flestum af sínum bekkjarbræðrum og svo kom Arnar sterkur inn og nú  segir hann alltaf við fólk sem kemur og hrósar kofanum, já þetta er nú mín hönnun ég smíðaði hann hér eina kvöldstundina á meðan Bylgja naglalakkaði  á sér tærnar. Hann er meira að segja búinn að grafa upphafsstafina sína í kofann.  En allir vita að brasarinn mikli og hugvitsmaðurinn Bergsteinn Logi á þetta fallega handbragð… en segja samt við Arnar svona til að særa hann ekki: ,,Vá hvað þú ert handlaginn, hvernig ferðu eiginlega að þessu og hvernig finnuru tíma í þetta" hehehe.

Garpur Ómar er byrjaður að klappa alveg eins og lítill trítill og setur upp Sólheimaglott af monti. VIð foreldrarnir erum afar stolt af afkvæminu og finnst hann duglegastur af öllum, ekki orðin 6 mánaða. Ómar bróðir reyndi nú að taka ánægjuna af okkur með því að segja að Alexía hefði byrjað á þessu 3ja mánaða, hann er alltaf í keppni við mig!!! Ég sagði bara: já hún er voða dugleg en ég meinti náttlega iiiiiihhhhiiiii platari. Alexía sem er orðin 15 mánaða stóð hjá með prakkaramontglottið sitt og skyldi alveg um hvað málið snérist, ég þóttist bara ekki taka eftir henni og bað Garp bara um að klappa sem hann gerði og ég sá að öll fjölskyldan hans Ómars var voða hissa en samt smá stolt…. hehehehe

Ég er að hugsa um að skrifa ekki meira í bili svo það komi ekki svona umferðahnútur hér aftur, en vona svo sanarlega að ég þurfi ekki að glíma við það aftur og valda ykkur þar með miklum vonbrigðum og óþægindum. þangað til næst kossar og knússs

April 27, 2006

Já já svona væri þetta

Filed under: Uncategorized — mist72 @ 10:37 pm

EF KARLMENN GENGU MEÐ BÖRNIN:
Væri barneignarfrí á fullum launum lágmark tvö ár…
Væri búið að finna lækningu við appelsínuhúð…
Væri "náttúruleg" fæðing úr sögunni…
Væri morgunógleði talið helsta heilsuvandamál þjóðarinnar…
Væri árangur getnaðarvarnapilla 100%…
Væru börn geymd á spítalanum þar til þau kynnu sjálf að fara á kopp…
Væru menn æstir í að binda sig…
Væru tvíburar ekki svona rosalega krúttlegir í þeirra augum…
Yrðu synir að vera komnir heim af stefnumótinu klukkan tíu á kvöldin…
Væru skjalatöskur notaðar sem bleyjugeymsla…
Væru óléttuföt helsta tískuframleiðsla heims…
Væru þeir rúmliggjandi alla níu mánuðina…
Myndu konur stjórna heiminum…

April 26, 2006

Pósturinn Páll, pósturinn Páll og kötturinn Njáll

Filed under: Uncategorized — mist72 @ 9:51 pm

Ég fékk mjög ánægjulegt bréf inn um lúguna í dag… reyndist ekki reikningur.. Bréfið byrjaði svona:,,Mér er ánægja að tilkynna að þér hefur verið veitt skólavist við framhaldsbraut kennaradeildar Háskólans á Akureyri í 60 eininga meistaranám, með áherslu á sérkennslufræði." Jamm þá er það á hreinu, mín ætlar að skella sér í allan pakkann. Þetta verður smá púsl hjá okkur fjölskyldunni þar sem ég þarf að mæta 4x á önn í 6 daga lotu til Akureyrar en allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi og svo á ég líka svo góða að;) Já og byrja bara 10. ágúst. Þannig að ég ætla sko að njóta þess að vera sumarfríi í júní og júlí.

Það er annars allt í góðum gír, síðasta verkefnið er að klárast hjá okkur stelpunum í hópnum, þannig að ég held að það sé bara útskrift í maí eða byrjun júní en ég huxa að ég nenni nú ekki að brunan norður til að mæta í hana. En það verður gott þegar þetta er búið, þetta eru nú ekki beint skemmtilegir áfangar sem við höfum verið að taka þarna í kennslufræðinni, var í áfanga sem hét skólar og skólaþróun sem ég helda að hafi verið alveg síðasta sort enn þessi sem ég er í núna íslenskt menntakerfi er nú ekki neitt skárri. Bara nöfnin á áföngunum ein og sér láta mann fá svona æinei tilfinningu, hvað þá þegar áfangalýsingin er lesin hehe. 

Ekkert meir af okkur að frétta, er bara að bíða eftir að Mæja komi í heimsókn. Mæja maður þarf bara að skoða dagatalið og ákveða… ekkert svona  bíða og sjá!!!

April 23, 2006

Næturbrölt

Filed under: Uncategorized — mist72 @ 12:38 am

það er næturbrölt í gangi hér hjá okkur Garpi Ómari. Hann er orðin allur hressari og laus við sterana og skapið því mjög fínt aftur;) En af því að maður er svona hress og kátur er þá ekki  um að gera að vaka eins mikið og hægt er, sérstaklega á kvöldin þegar ekki þarf að deila múttu túttu. Múttan nennir ekki að taka almennilega á þessu ein og bíður eftir að pabbinn komi heim í vaktafrí svo þau geti í sameiningu tekið á þessu, ekki þarf færri en tvo á svona kríli ;) Ég hefði ekki trúað því hvað þessir steradjöflar fóru í skapið á honum.,, Hann verður smá pirraður af þessum töflum" sagði hjúkkan, ég myndi frekar orða það öðruvísi eins og t.d hann verður brjálaður í skapinu. 

Svo ég tali nú aðeins umm veðrið hér í dag, þá var brjáluð snjókoma og rok í morgun en svo þegar leið á daginn var hið fínasta veður, eiginlega bara svona vorfílingur. Já ég held ég sé bara farin að hlakka til sumarsins. Ég verð bara heimaliggjandi með krökkunum í sumar ekki einu sinni í skóla…. bara frí.. ætla að hafa það huggulegt.

Bergsteinn var að minna mig á eitt ótrúlega fyndið atvik sem gerðist hér í frostinu í vetur, einn morguninn þegar hann var að fara í skólann var sá gamli hérna á neðrihæðinni(treysti því að hann sé ekki netfíkill að þefa upp blogg hjá nágrönnunum) að afþýða bílinn sinn með HÁRBLÁSARA já og hann þurfrti svona 10 metra framlengingasnúru til að blásarinn gæti hitað bílskrjóðinn en bæði maðurinn og bíllinn eru frá fyrri part síðustu aldar. Ég get alveg sagt ykkur að Bergsteinn sem er tækjafíkill fannst ekki ónýtt að vera vitni af þessu, hefur sennilega mætt og seint í skólann.

Bergsteinn var mikið á snjósleða með pabba sínum fyrir norðan og hann hringdi í mig frá Akureyri til að segja mér að hann væri alveg til í svona barnasnjósleða í afmælisgjöf… ég tók nú ekki neitt rífandi vel í það þá sagði hann ok þá allavega lítinn kettling.. þetta kalla ég nú að gefa pínu eftir ;)

Aldrei eins og vant hefur Tinna ekki verið með nein sérstök innskot hér á heimilinu en hefur þó sagt ansi oft við mig síðustu daga VÁ hvað þú ert leiðinleg mamma…..eða VÁ hvað þú ert frek mamma…. ;)   

April 20, 2006

Gleðilegt sumar

Filed under: Uncategorized — mist72 @ 9:14 pm

Garpur er orðin miklu skárri í dag enda verið á sterum í 3 daga af 4. Elsku litli kallinn er jafn skapvondur og vaxtaræktatröll á slæmum degi. Hann er svo pirraður litli kúturinn en sem betur fer er bara 1 dagur eftir á þessu steragumsi. En staðan er sú að við erum í raun næstum á byrjunarreit með að finna hvað það er sem veldur. Hann fór í blóðprufu þar sem mótefnið hgG var mælt en það myndast í blóðinu ef um ofnæmi, asma og exem er að ræða og eitthvað fleira. Það mótefni mældist hækkað og því var hann sendur í fl blóðprufur til að kanna ofnæmi, fimm algengar fæðutegundir voru settar inn en það kom ekki jákvæð svörun, þrátt fyrir að mótefnið sé hækkað. Staðan er því þannig að ef útbrotin blossa aftur upp þrátt fyrir sterana þá þarf hann að fara í frekari rannsóknir hjá húðsjúkdómalækni.

Eldri börnin komu heim í gær, svo hress og kát enda gaman á Akureyri. Í dag eru þau bara búin að vera úti að leika sér við vini sína. þau tóku líka þátt í víðavangshlaup í dag og komu heim með verlaunapening eins og allir sem tóku þátt. Svo var líka opið hús á leikskólanum þannig að ég og grísirnir 3 fórum að skoða afrakstur vetrarins, margt mjög fallegt og ekki vantaði hugmyndaflugið til að búa til listaverkin. þannig að það er búið að vera nóg að gera hjá okkur á sumardaginn fyrsta!!!

April 17, 2006

Filed under: Uncategorized — mist72 @ 7:56 pm

Nú er Garpur Ómar aðeins betri en í gær, en í gær bólgnaði hann allur upp við augun og var ekki neitt sérstaklega sætur að sjá… Hann er enn með þessi útbrot út um allt en okkur finnst þetta nú hafa lagast aðeins, annars er þetta svo breytilegt að það er erfitt að segja til um hvort þetta sé að fara. Hann er aðeins betri í skapinu en sefur bara smá dúra og er frekar ergilegur, það koma þó tímabil sem hann er fínn eins og áðan þegar hann var að skoppast um í hoppirólunni.

Er aðeins búin að heyra frá stóru krílunum mínum. það er búið að vera heilmikið fjör hjá þeim fyrir norðan, snjósleðaferðir og skemmtilegar heimsóknir til vina og vandamanna. þau koma svo heim á miðvikudaginn, það verður gaman að sjá þau aftur.

Annars er ég að reyna að vinna eitthvað í þessu verkefni mínu sem ég á að skila eftir 2 vikur, hef lítinn tíma haft en þetta þokast. það verður gott að komast í smá sumarfrí ;)

ekki meira í bili frá okkur  

Older Posts »

Theme: WordPress Classic. Blog at WordPress.com.

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.